20 ágúst 2015
Staðan á vinnumarkaði kynnt í ríkisstjórn
<p>Alls voru um 4680 skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í júlí síðastliðnum og svarar það til 2,6% atvinnuleysis. Atvinnuleysi mældist 3,2% meðal kvenna en 2,0% hjá körlum. Atvinnuástand mældist svipað í júní síðastliðnum og áætlað er að skráð atvinnuleysi í ágúst verði á bilinu 2,6 – 2,8%. Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnti stöðuna á innlendum vinnumarkaði fyrir ríkisstjórn í dag.</p>