13 maí 2014Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Sveitarfélagið Djúpivogur, Reykjavíkurborg, bærinn Skaftholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Sólheimar í Grímsnesi og sveitarfélögin Eyja- og Miklaholtshreppur, Helgafellssveit, Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær á Snæfellsnesi eru meðal þeirra sem lagt er til að hljóti umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í ár.