24 júní 2025Utanríkisráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í dag í Haag í Hollandi, þar sem gert er ráð fyrir að aukin framlög bandalagsríkja til sameiginlegra varna bandalagsins verði helsta mál á dagskrá. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.