19 ágúst 2014Utanríkisráðuneytið
Krossgötur í Dyflinni
Á árinu er þess minnst að þúsund ár liðin frá Brjánsbardaga, sem talinn er marka endalok yfirráða víkinga á Írlandi. Bardaginn var háður á föstudaginn langa 1014, á Nautsakri (Clontarf) í norðurhluta Dyflinnar, en þar tókust á herir undir forystu yfirkonungs Íra, Brjáns Borumha, og leiðtoga víkinga og írskra smáhöfðingja, Sigtryggs Silkiskeggs.