24 október 2011
Ísland gerir níu nýja loftferðasamninga
<p>Nýju samningarnir eru við Ástralíu, Gana, Jórdaníu, Laos, Paraguay, Rúanda, Sádí-Arabíu, Sambíu og Suður-Afríku. Jafnframt var samið um aukin réttindi við Mexíkó og undirritaðar viljayfirlýsingar um gerð loftferðasamninga við Eþíópíu, Írak, Pakistan og Sri Lanka</p>