10 júlí 2007
Vegaframkvæmdum fyrir 6,5 milljarða verður flýtt
<p></p>
<p align=justify>Flýta á vegaframkvæmdum á ellefu stöðum á landinu á næstu þremur árum og verða fluttir til 6,5 milljarðar króna vegna þessa. Framkvæmdirnar eru við Vestfjarðaveg, Arnarfjarðargöng, Strandaveg, Norðausturveg, Dettifossveg, Norðfjarðargöng, Axarveg, Suðurstrandarveg og Fróðárheiði.</p>