30 janúar 2003Heilbrigðisráðuneytið
Framkvæmdir út úr friðlandinu
Jón Kristjánsson, settur umhverfisráðherra, hefur úrskurðað í þeim ellefu kærum sem fram hafa komið vegna fyrirhugaðrar Norðlingaölduveitu. Ráðherra fellst á framkvæmdir með ströngum skilyrðum. Megin skilyrðin sem ráðherra setur fela í sér að fyrirhugað lón fer algjörlega út úr friðlandinu, náttúrufar og vatnsbúskapur í friðlandinu raskast ekki og nær ekkert gróið land fer undir vatn.