25 apríl 2013Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Samningur um brúðuleikhússýningu um vitundarvakningu endurnýjaður
Samningur um sýningar á brúðuleikhússýningunni Krakkarnir í hverfinu hefur verið endurnýjaður. Sýningin er liður í vitundarvakningu um kynferðisofbeldi gegn börnum í samstarfi innanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis og í samræmi við samning Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun.