01 september 2016
Þingsályktun um rammaáætlun lögð fyrir Alþingi
<p>Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur að höfðu samráði við Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ákveðið að leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um vernd og orkunýtingu landsvæða. Tillagan er samhljóða niðurstöðum verkefnisstjórnar 3. áfanga rammaáætlunar, sem skilaði ráðherra lokaskýrslu sinni síðastliðinn föstudag.</p>