30 október 2020
Ráðherra fór yfir stöðu varðandi riðu í Skagafirði
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðunni vegna staðfestrar riðuveiki í Skagafirði. Rannsóknir hafa leitt í ljós að riðuveiki er staðfest á fjórum sauðfjárbúum í Skagafirði, þ.e. Stóru-Ökrum 1, Syðri-Hofdölum, Grænumýri og Hofi í Hjaltadal.