18 mars 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Lífskjör aldrei betri samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofu
Heimilin telja gæði eigin lífskjara í, eða nálægt, sögulegu hámarki. Þetta sýna niðurstöður lífskjararannsóknar Hagstofunnar fyrir árin 2019-2021, en fjármála- og efnahagsráðherra kynnti minnisblað um rannsóknina í ríkisstjórn í dag.