09 maí 2003
Öndvegissetur í auðlindalíftækni við Háskólann á Akureyri.
Þann 6. maí 2003 undirrituðu Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, samkomulag um að unnið yrði að því að til verði öndvegissetur í auðlindalíftækni í tengslum við Háskólann á Akureyri.