30 janúar 2014Innviðaráðuneytið
Rakel Olsen skipuð formaður fagráðs um hafnamál
Innanríkisráðherra hefur skipað Rakel Olsen, stjórnarformann Agustson ehf. í Stykkishólmi, formann fagráðs um hafnamál. Skipað er í fagráðið til tveggja ára í samræmi við ákvæði laga um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, um endurskipulagningu samgöngustofnana og sitja í ráðinu fulltrúar sömu aðila og í hafnaráði áður.