03 september 2014
Nýtt tengivirki Landsnets og Orkubús Vestfjarða á Ísafirði
<p>Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók í dag formlega í notkun nýtt tengivirki Landsnets og Orkubús Vestfjarða á Ísafirði. Nýja tengivirkið er staðsett á iðnaðarsvæðinu á Skeið, innan við Ísafjarðarkaupstað, og er um samstarfsverkefni Landsnets og Orkubús Vestfjarða að ræða. Framkvæmdir hófust haustið 2013 og var heildarkostnaður um hálfur milljarður króna.</p>