26 júní 2004Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Fréttatilkynning
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hélt í dag til Malaví þar sem hann mun m.a. eiga viðræður við félagsmálaráðherra Malaví um nánara samstarf á sviði félagsmála, einkum er varðar velferð barna og fjölskyldna. Þá mun ráðherra eiga fund með nýkjörnum forseta Malaví, Dr. Bingu wa Mutharika.