13 október 2016Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Útreikningar lífeyris-greiðslna í kjölfar breytinga á almanna-tryggingalögum
Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um almannatryggingar, félagslega aðstoð og málefni aldraðra sem felast m.a. í breyttu og einfölduðu bótakerfi og sveigjanlegum starfslokum. Á vef Tryggingastofnunar ríkisins er aðgengileg bráðabirgðareiknivél sem gerir einstaklingum kleift að sjá upphæðir greiðslna árið 2017, með ákveðnum fyrirvörum.