12 október 2023
Aðstoð fyrir fjölskyldur fanga
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Bjargráði 12 milljóna króna styrk. Bjargráð er þjónusta fyrir fjölskyldur og aðstandendur sem eru í þeim sporum að einhver nákominn bíður eftir afplánun, er í afplánun eða er laus úr henni. Þjónustan var sett á laggirnar á síðasta ári með stuðningi félags- og vinnumarkaðsráðherra.