16 september 2016Mennta- og barnamálaráðuneytið
Nýr fjölþjóðlegur samstarfsvettvangur í menntamálum
Tveggja daga stofnfundi Atlantic Rim Collaboratory lauk í Reykjavík í gær. Ráðherrar menntamála, fulltrúar kennarasamtaka, menntamálastofnana, sveitarfélaga, embættismenn og sérfræðingar frá Finnlandi, Skotlandi, Írlandi, Kanada, Bandaríkjunum, Aruba og Íslandi tóku þátt. Hvatamaður að stofnun þessa samráðsvettvangs er Andy Hargreaves prófessor við Boston háskólann í Bandaríkjunum.…