02 september 2011Utanríkisráðuneytið
Opinber heimsókn Kuupik Kleist, formanns grænlensku landstjórnarinnar
Kuupik Kleist, formaður grænlensku landstjórnarinnar, kemur í opinbera
heimsókn til Íslands mánudag, 5. september til 7. september. Hann mun
eiga fundi með forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, Össuri
Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni
fjármálaráðherra.