26 janúar 2016
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra ræddi samstarf og ábyrga auðlindanýtingu á norðurslóðum
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók í dag þátt í norðurslóðaráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsö í Noregi. Ráðherra ávarpaði ráðstefnuna og ræddi um mikilvægi samstarfs um ábyrga auðlindanýtingu á norðurslóðum, hvort sem væri í orkumálum, iðnaði, ferðaþjónustu eða nýtingu fiskistofna.