08 maí 2018Tillögur um að beita efnahagslegum hvötum í lýðheilsuskyniSvandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í dag tillögur Embættis landlæknis um að breyta álögum á tiltekin matvæli til bæta neysluvenjur landsmanna. Tillögurnar eru í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um aðgerðir til að efla lýðheilsu og draga úr heilsufarslegum ójöfnuði.
08 maí 2018Umsækjendur um stöðu skólameistara og rektorsÁtta umsóknir bárust um stöðu skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla og þrjár um embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð.
08 maí 2018Nr. 224/2018 - Úrskurður Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.
08 maí 2018Nr. 218/2018 - Úrskurður Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Þýskalands er staðfest.
08 maí 2018Nr. 219/2018 ÚrskurðurÁkvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Ítalíu er staðfest.
08 maí 2018Nr. 217/2018 ÚrskurðurÁkvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og senda hann til Belgíu er staðfest.
08 maí 2018Nr. 214/2018 ÚrskurðurÁkvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa honum frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
08 maí 2018Nr. 208/2018 ÚrskurðurÁkvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa honum frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
07 maí 2018Ráðstefna um málefni barna á morgunRúmlega 300 þátttakendur hafa skráð sig á opna ráðstefnu um snemmtæka íhlutun í málefnum barna á Íslandi - SIMBI - á Hilton Reykjavík Nordica á morgun. Enn eru örfá sæti laus. Fyrirlesarar eru innlendir og erlendir með víðtæka þekkingu á málefnum barna.
07 maí 2018Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar tekin til starfaNý ráðuneytisstofnun; Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF), tók formlega til starfa í dag. Stofnunin mun í byrjun sinna stjórnsýsluverkefnum og eftirliti á sviði félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga, auk afmarkaðs eftirlits á sviði barnaverndar.
07 maí 2018EndurupptakaEndurupptaka - Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar - Ákvörðun byggð á röngu mati - Menningarhlutinn uppfylltur - Tekið til efnismeðferðar að nýju
07 maí 2018Þverpólítískur starfshópur skipaður um orkustefnu fyrir ÍslandÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað starfshóp með aðkomu allra þingflokka til að vinna orkustefnu fyrir Ísland. Þess er vænst að tillaga hópsins verði lögð fram til umræðu á Alþingi í byrjun árs 2020.
07 maí 2018Ákvörðun Fiskistofu um að afturkalla eldri ákvörðun um staðfestingu á flutningi aflahlutdeildar milli skipa.Aflahlutdeild - afturköllun staðfestingar á flutningi aflahlutdeildar - reglugerð - sérstök sameign - samþykki eigenda.
07 maí 2018Umhverfisþing haldið 9. nóvemberUmhverfis- og auðlindaráðherra boðar til XI. Umhverfisþings föstudaginn 9. nóvember 2018. Þingið fer fram á Grand Hótel Reykjavík.
06 maí 2018Ministry for Foreign AffairsEMPOWERED - ICELANDIC SOLUTIONS FOR EUROPEThe conference held on 30 May 2018 at the Nordic Embassies in Berlin was a lively forum for cross sector discourse. In an almost tropical climate that day in Berlin, more than 100 participants gained access to the latest intelligence from the field and discussed about opportunities for cooperation, about success stories but also challenges and risks.
05 maí 2018Rannsóknarinnviðir og evrópskt samstarf: tækifæri og áskoranirMennta- og menningarmálaráðuneytið heldur kynningarfund í tengslum við undirbúning að gerð vegvísis um rannsóknarinnviði mánudaginn 7. maí.
05 maí 2018Forritað á íslensku – umhverfi micro:bit tölvanna þýttMicro:bit smátölvur njóta mikilla vinsælda hjá yngstu forriturunum. Nú er hægt að forrita þar á íslensku.
04 maí 2018Afrakstur nýsköpunarstofu um þjónustu við aldraða á höfuðborgarsvæðinuFjórar ýtarlegar tillögur um aðgerðir til að bæta þjónustu við aldraða eru afrakstur nýsköpunarstofu um þessi mál sem haldinn var í Höfða í lok apríl. Aðstandendur nýsköpunarstofunnar hafa ákveðið að efna til formlegs samstarfs til að vinna nánar úr tillögunum og hrinda þeim í framkvæmd.
04 maí 2018Ríkissaksóknari svarar dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra óskaði eftir því 20. apríl sl. að ríkissaksóknari kannaði, með vísan til 19. gr. sakamálalaga, tildrög þess að einstaklingur var vistaður á Sogni í kjölfar fyrirtöku gæsluvarðhaldskröfu 16. apríl sl. og lagalegan grundvöll þeirrar frelsissviptingar. Ríkissaksóknari hefur nú greint dómsmálaráðuneytinu frá niðurstöðu sinni og fyrirhuguðum viðbrögðum.
04 maí 2018Kvikmyndin Kona fer í stríð fær styrkRíkisstjórnin samþykkti í dag að veita kvikmyndinni Kona fer í stríð styrk af ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af kynningarkostnaði vegna þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
04 maí 2018Staða íslenskra háskólanema: aðgengi, efnahagur og tækifæri til náms. Niðurstöður EUROSTUDENT VI
04 maí 2018Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á ÍslandiStarfshópur sem unnið hefur tillögur að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi hefur skilað heilbrigðisráðherra niðurstöðum sínum. Aðgerðaáætlunin verður kynnt á málþingi geðsviðs Landspítala um sjálfsvígsfornarnir í dag.
04 maí 2018Samningur um talsmannaþjónustu Dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun skrifuðu undir samning á dögunum við Rauða krossinn á Íslandi um aðstoð og þjónustu við einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.
03 maí 2018Miklar veðurfarsbreytingar og ör súrnun sjávarNý skýrsla um afleiðingar loftslagsbreytinga á náttúru og samfélag á Íslandi var kynnt í Veðurstofu Íslands í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók á móti fyrsta eintakinu og sagði við það tilefni að skýrslan myndi nýtast í starfi stjórnvalda, meðal annars við fræðslu, eflingu vöktunar og aðlögun að loftslagsbreytingum.
03 maí 2018Skipað í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu heilbrigðisþjónustuSvandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Elsu B. Friðfinnsdóttur skrifstofustjóra yfir skrifstofu heilbrigðisþjónustu í velferðarráðuneytinu. Skipunin er í samræmi við mat ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat Elsu hæfasta úr hópi þrettán umsækjenda.
03 maí 2018Nr. 220/2018 - Úrskurður Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum er staðfest. Ákvörðun um að brottvísa kæranda frá Íslandi og ákveða honum endurkomubann er felld úr gildi.
03 maí 2018Niðurstöður um aukaúthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrri hluta árs 2018Föstudaginn 27. apríl 2018 rann út tilboðsfrestur í aukaúthlutun tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2018, sbr. reglugerð nr. 1010/2017.
03 maí 2018Forsætisráðherra fundaði með öldungardeildarþingmönnum franska þjóðþingsinsKatrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með fjórum öldungardeildarþingmönnum frá franska þjóðþinginu sem eru í vináttuhópi Norður-Evrópu.
03 maí 2018Tillögur starfshóps um bætta tannheilsu öryrkja og aldraðraLeitað verður samninga við tannlækna um nýja gjaldskrá vegna tannlækninga öryrkja og aldraðra og kostnaðarþátttaka ríkisins aukin. Byggt verður á tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum þessa hóps sem skilaði tillögum sínum fyrir nokkru.
03 maí 2018Fjárhæðir atvinnuleysistrygginga hækka frá og með 1. maí 2018Atvinnuleysisbætur hækkuðu 1. maí sl. í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í þágu félagslegs stöðugleika sem gefin var út 28. febrúar sl.
03 maí 2018Breyting á reglugerð um sveinsprófBreyting á reglugerð um sveinspróf hefur tekið gildi sem heimilar nemendum sem eiga innan við 10% ólokið af vinnustaðanámi sínu að taka sveinspróf.
03 maí 2018Nr. 212/2018 - Úrskurður Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum ásamt því að brottvísa honum frá Íslandi og ákveða endurkomubann er staðfest.
03 maí 2018Nr. 220/2018 ÚrskurðurÁkvörðun Útlendingastofnunar að því er varðar umsókn um alþjóðlega vernd, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og frávísun er staðfest. Felld er úr gildi ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að gera ríkislögreglustjóra viðvart um niðurstöðu kærunefndar. Kærandi skal yfirgefa landið innan 7 daga.
03 maí 2018Nr. 210/2018 ÚrskurðurBeiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa er vísað frá.
03 maí 2018Nr. 209/2018 ÚrskurðurBeiðni kæranda um endurupptöku máls fyrir kærunefnd á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er hafnað. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa er vísað frá.
03 maí 2018Hjólum í vinnunaHeilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, er hafið. Meginmarkmið verkefnisins er að vekja athygli heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgönguleiðum.
03 maí 2018Þroskahjálp og framtíðinÁ fundi mennta- og menningarmálaráðherra með fulltrúum Þroskahjálpar var rætt um réttindi og tækifæri fatlaðs fólks til menntunar og þátttöku í menningarlífinu.
03 maí 2018Mál nr. 2/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:<p align="justify">Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 7. mars 2018 kærir Munck Íslandi ehf. útboð Ríkiskaupa f.h. Reykjanesbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20681 auðkennt „Stapaskóli, Grunnskólinn Dalsbraut 11-13, 260 Reykjanesbæ.…
03 maí 2018Mál nr. 16/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:<p align="justify">Með kæru 13. júlí 2017 kærði Sjónarrönd ehf. samkeppnisútboð Ríkiskaupa, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins (hér eftir vísað til beggja sem „varnaraðila“) nr. 20527 „Financial Planning System“. Kærandi krefst þess að samningsgerð verði stöðvuð, ákvörðun varnaraðila um val á tilboði Capacent ehf. verði felld úr gildi og varnaraðilum gert að auglýsa útboðið á nýjan leik.…
03 maí 2018Mál 24/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:<p align="justify">Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 3. nóvember 2017 kærðu Ellert Skúlason ehf. og A.B.L. tak ehf. útboð varnaraðila Akraneskaupstaðar auðkennt „Niðurrif Sementsverksmiðju á Akranesi“. Kærendur krefjast þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi þá ákvörðun varnaraðila frá 17. október 2017 að ganga til samninga við Work North ehf.…
03 maí 2018Mál 25/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:<p align="justify">Með kæru 13. nóvember 2017 kærði Klíníkin Ármúla ehf. samning Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) um kaup á myndgreiningarþjónustu sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu 21. september 2017. Endanlegar kröfur kæranda eru að kærunefnd útboðsmála lýsi óvirkan í heild sinni samning varnaraðila og Myndgreiningarrannsóknarstöðvar Hjartaverndar ehf.…
03 maí 2018Mál nr. 3/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:<p align="justify">Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 26. mars 2018 kærir Sveinbjörn Freyr Arnaldsson f.h. óstofnaðs einkahlutafélags Sportisca útboð Garðabæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Íþróttasvæði í Ásgarði – Aðalvöllur. Endurnýjun á knattspyrnugrasi á núverandi fjaðurlag“.…
03 maí 2018Mál 26/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:<p align="justify">Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. nóvember 2017 kærði Egilsson ehf. rammasamningsútboð Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. 20500 auðkennt „RS Ritföng og skrifstofuvörur“.…
03 maí 2018Mál nr. 29/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:<p align="justify">Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. desember 2017 kærði Þjóðleikhúsið kaup varnaraðila Reykjavíkurborgar á leikhúsmiðum frá Borgarleikhúsinu að verðmæti kr. 43.462.500 sem fram fóru án útboðs. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála veiti álit „á því hvort umrædd kaup án útboðs hafi bakað Reykjavíkurborg skaðabótaskyldu gagnvart kæranda, sbr. 2. mgr. 11.…
02 maí 2018Skýrsla starfshóps um tollasamning og mótvægisaðgerðir stjórnvaldaMeð vísan til umræðu í fjölmiðlum um mótvægisaðgerðir vegna tollasamnings Íslands við Evrópusambandið vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri.
02 maí 2018Grunnskólanemar úr Árbæjarskóla funduðu með forsætisráðherraÍda Marín, Selma María, Elín Rósa og Astrid Eyberg, grunnskólanemar úr Árbæjarskóla, funduðu með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í morgun.
02 maí 2018Vinna hafin við mótun nýsköpunarstefnuÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, lagði á síðasta ríkisstjórnarfundi fram tillögu að gerð heildstæðrar nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Kveðið er á um mótun stefnunnar í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og er hún nú formlega hafin.
02 maí 2018Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis hafin Hægt er að greiða atkvæði á sendiskrifstofum og hjá ræðismönnum Íslands erlendis.
02 maí 2018Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, stýrir óháðri úttekt á málum á sviði barnaverndarAð tillögu Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hefur verið ákveðið að fram fari óháð úttekt á tilteknum málum á sviði barnaverndar hér á landi, sem verið hafa til umfjöllunar í velferðarráðuneytinu og hjá velferðarnefnd Alþingis.
02 maí 2018Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum frá Evrópusambandinu á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018Föstudaginn 20. apríl 2018 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 318/2018 fyrir tímabilið 1. maí – 31. desember 2018.
02 maí 2018Ingvar J. Rögnvaldsson settur ríkisskattstjóriFrá og með 1. maí 2018 hefur Ingvar J. Rögnvaldsson verið tímabundið settur til að gegna embætti ríkisskattstjóra.
02 maí 2018Samstarf við öflug ungmennasamtökLandsamband ungmennafélaga, LUF, eru regnhlífasamtök frjálsra félagasamtaka ungs fólks á Ísland. Á dögunum skrifuðu fulltrúar LUF undir samstarfssamning við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem styrkja mun starfsemi þess næstu þrjú árin.
02 maí 2018Íslenskur talgreinir í loftiðVefgátt fyrir nýjan íslenskan talgreini var opnuð á máltæknikynningu í Háskólanum í Reykjavík á dögunum. Á síðunni getur fólk kynnt sér talgreiningu og upplifað hvernig hún snýr talmáli í ritmál.
30 apríl 2018Stuðningur við VotlendissjóðGuðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Árni Bragason landgræðslustjóri skrifuðu í dag undir samning um verkefni á sviði loftslagsmála. Markmiðið er að efla starf varðandi loftslagsbókhald og rannsóknir sem tengjast landnotkun og loftslagsmálum.
30 apríl 2018Framsýnn Fossvogsskóli flaggar Grænfánanum Fossvogsskóli í Reykjavík hlaut í dag Grænfánann, alþjóðlega umhverfisviðurkenningu sem Landvernd veitir, fyrir þátttöku í verkefninu Skólar á grænni grein. Fossvogsskóli hefur lagt alúð í umhverfismál í yfir þrjá áratugi.
30 apríl 2018Úttekt Oxford-háskóla á stöðu netöryggis og aðgerðir til eflingar þessOxford-háskóli, sem var fenginn í júní 2017 til að gera úttekt á stöðu netöryggis í íslensku samfélagi, hefur skilað ítarlegri úttekt sinni. Þar er að finna ráðleggingar til úrbóta sem ráðuneyti og stofnanir hafa þegar tekið til skoðunar og ákvörðunar varðandi skipulag næstu skrefa.…
30 apríl 2018Endurskoðaðar áætlanir um úthlutanir til sveitarfélaga árið 2018Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaðar áætlanir um úthlutanir framlaga til sveitarfélaga á árinu 2018. Að tillögu nefndarinnar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 9.225 m.kr. og áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 8.260 m.kr.
30 apríl 2018Lokað 1. maíÍ tilefni af frídegi verkalýðsins verður sendiráðið í Kaupmannahöfn lokað þriðjudaginn 1. maí. Sendiráðið opnar aftur miðvikudaginn 2. maí/ Islands Ambassade er lukket i morgen, den 1. maj.
28 apríl 2018Katrín Jakobsdóttir á afmælishátíð Framsýnar á Húsavík Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði afmælishátíð stéttarfélagsins Framsýnar í dag, þar sem fagnað var hundrað ára afmæli Verkakvennafélagsins Vonar.
27 apríl 2018Samningar náðust í kvöld um heimaþjónustu ljósmæðraSamningar tókust í kvöld milli Sjúkratrygginga Íslands og ljósmæðra sem sinna heimaþjónustu. Endurskoðaður rammasamningur um þjónustuna hefur verið undirritaður af samningsaðilum og staðfestur af heilbrigðisráðherra. Ljósmæður sem veitt hafa þjónustu á grundvelli rammasamnings munu hefja störf nú þegar.
27 apríl 2018Margvíslegar réttarbætur fyrir fatlað fólk staðfestar með lögum frá AlþingiAlþingi hefur samþykkt heildarlög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lög um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lagabreytingarnar fela m.a. í sér lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).
27 apríl 2018Ríkisstjórnin úthlutar fjórum milljörðum króna til brýnna vegaframkvæmda Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að veita fjögurra milljarða króna framlag til brýnna vegaframkvæmda árið 2018 úr almennum varasjóði sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með.…
27 apríl 2018Ministry for Foreign AffairsStatement to the Security Council- Debate on the Middle East, including the Palestinian Question by Ambassador Einar GunnarssonUn Security Council Debate on the Middle East, including the Palestinian question 26 April 2018 Statement by H.E. Einar Gunnarsson, Permanent Representative
27 apríl 2018Eining er undirstaða NATO-samstarfsinsUtanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu samskiptin við Rússland, ástandið í Sýrlandi, stuðning við Írak og Afganistan auk stækkunarstefnu bandalagsins á fundi sínum sem lauk nú síðdegis í Brussel. Fundinum var slitið með fundarhamri sem Íslendingar gáfu á sínum tíma.
27 apríl 2018Efnahagsleg áhrif friðlýstra svæða greindGuðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tilkynnti í dag um samstarfsverkefni milli ráðuneytisins og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um skipulagt mat á efnahagslegum áhrifum friðlýstra svæða.
27 apríl 2018Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Heilsugæslu á landsbyggðinniHeildstæð heilbrigðisstefna er forsenda árangursríkrar heilsugæslu á landsbyggðinni og þess að hægt sé að endurbæta fjármögnunarkerfi heilsugæslunnar. Því er brýnt að heilbrigðisráðherra leggi fram slíka stefnu. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, Heilsugæsla á landsbyggðinni.
27 apríl 2018Ríkisstjórnin styrkir UNICEF um fimm milljónir kr. vegna útgáfu skýrslu um efnislega stöðu barna á ÍslandiRíkisstjórnin mun veita fimm milljónir kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til þess að styrkja útgáfu skýrslu um stöðu efnislegs skorts barna á Íslandi, sem UNICEF á Íslandi mun vinna í samstarfi við Hagstofu Íslands.
27 apríl 2018Stefnumótun og áætlanagerð Stjórnarráðsins styrkist verulegaStefnuráð Stjórnarráðsins hefur framkvæmt könnun á stöðu stefnumótunar og áætlanagerðar innan Stjórnarráðsins og forsætisráðherra kynnti niðurstöður könnunarinnar í ríkisstjórn í morgun.
27 apríl 2018Fjölmenn rakararastofuráðstefna undir forystu Íslands og Danmerkur á Evrópuráðsþinginu í gærÍsland og Danmörk stóðu að fjölmennum rakarastofuviðburði fyrir Evrópuráðið og Evrópuráðsþingið í gær.…
27 apríl 2018Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hafinTekið er á móti kjósendum í sendiráðinu í París alla virka daga frá 9:30-15:30. Kosningarrétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 26. maí 2018, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. 5. maí 2018.
27 apríl 2018Ministry of Finance and Economic AffairsProgress of the Plan for Removal of Capital ControlsThe Minister of Finance and Economic Affairs today published a report on the progress of plans to remove restrictions on cross-border capital movements and foreign currency trading. The minister shall make a report on the progress public at six-month intervals until such restrictions are finally removed.
27 apríl 2018Framgangur áætlunar um losun fjármagnshaftaFjármála- og efnahagsráðherra birti í dag greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta, en samkvæmt lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál ber honum að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.
27 apríl 2018Menningarmót í FellaskólaNemendur Fellaskóla í Breiðholti buðu mennta- og menningarmálaráðherra í skyndiheimsreisu í gær. Þar fór fram Menningarmót hjá nemendum í 8. bekk sem kynntu áhugamál sín og fjölbreytta menningu, hvert á sinn hátt.
26 apríl 2018Opið fyrir umsagnir um verkferla í íþróttum Í kjölfar #églíka yfirlýsinga íþróttakvenna hefur mennta- og menningarmálaráðherra skipað starfshóp til þess að gera tillögur um frekari aðgerðir. Opið er fyrir umsagnir til hópsins í Samráðsgátt til. 7. maí.
26 apríl 2018Ráðherra opnaði margmiðlunarsýningu í BerlínÓgnarkraftar náttúrinnar voru í aðalhlutverki í Felleshus, norrænni miðstöð sendiráðanna í Berlín í dag þegar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra opnaði margmiðlunarsýninguna MAGMA: CREATING ICELAND. Sýningin er í tilefni 100 ára fullveldis Íslands.…
26 apríl 2018Drög að reglugerð um mengaðan jarðveg í umsögnUmhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að reglugerð um mengaðan jarðveg.
26 apríl 2018„Risastór og langþráður áfangi í uppbyggingu Landspítalans“Útboð jarðvinnu við nýjan meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut hefur verið auglýst og framkvæmdir munu hefjast í sumar. Meðferðarkjarninn er stærsta bygging framkvæmdarinnar og mun gjörbreyta allri aðstöðu fyrir sjúklinga, starfsfólk og aðra sem tengjast starfsemi sjúkrahússins.
26 apríl 2018Ráðherra afhenti aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins fullgildingarskjal IstanbúlsamningsinsÁsmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, fundaði í dag með Thorbjørn Jagland aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins. Á fundinum afhenti ráðherra staðfestingarskjal um fullgildingu Íslands á samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi.
25 apríl 2018Ísland hlýtur alþjóðlega viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf í jafnréttismálum Tilkynnt var í gærkvöldi að Ísland hlyti sérstaka viðurkenningu fyrir brautryðjandastarf í þágu jafnréttis kynjanna, undir yfirskriftinni Framtíð karlmennskunnar (Future of Manhood). Það eru kanadísku samtökin Promundo sem veita viðurkenninguna.