29 apríl 2015Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Verndaráætlun Breiðafjarðar undirrituð
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur undirritað verndaráætlun Breiðafjarðar fyrir árin 2014 – 2019. Áætlunin er stefnumörkun Breiðafjarðarnefndar þar sem sérstöðu fjarðarins er lýst. Þá er mörkuð stefna um útfærslu stjórnunar og umsýslu vegna verndar, skipulags og framkvæmda á svæðinu og sýndar leiðir til að ná markmiðum um vernd náttúru- og menningarminja svæðisins.