16 desember 2011Atvinnuvegaráðuneytið
Ríkið og HS Orka hf. undirrita viljayfirlýsingu varðandi samningaviðræður um nýtingu jarðhitaréttinda
Fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra undirrituðu í dag viljayfirlýsingu milli ríkisins og HS Orku hf., þar sem gert er ráð fyrir að aðilar hefji samningaviðræður um nýtingu jarðhitaréttinda í landi jarðanna Kalmanstjarna, Junkaragerðis og Staðar, sem taki jafnframt til endurskoðunar gildandi samninga. Er stefnt að því að samningum verði lokið eigi síðar en 1. júlí 2012.