04 nóvember 2009
Fyrsti fundur ráðherranefndar um efnahagsmál
<p>Ráðherranefnd um efnahagsmál hélt sinn fyrsta fund í dag og fjallaði um samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, framtíðarskipulag peningamála, samræmingu fjármála ríkis- og sveitarfélaga, uppbyggingu fjármálakerfisins, þróun efnahagsmála og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi, en þetta verða fastir liðir á dagskrá hennar á næstunni.</p>