19 maí 2022Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Aðgerðir kynntar um meira öryggi og aukið framboð á húsnæðismarkaði
Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði sem skipaður var í febrúar sl. kynnti tillögur sínar á fundi Þjóðhagsráðs í morgun. Á grundvelli tillagnanna munu stjórnvöld nú þegar leggja áherslu á aukna uppbyggingu íbúða, endurbættan húsnæðisstuðning og bætta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda.