07 janúar 2003
Frumvarp til laga um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði.
Á fundi ríkisstjórnar í morgun var samþykkt tillaga Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um að leggja fyrir þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingi, þegar þing kemur saman þann 21. janúar nk., frumvarp til laga um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði.