19 apríl 2007
Ráðstefna í tilefni af Ári jafnra tækifæra 2007
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra setur verkefnið <em>Evrópuár jafnra tækifæra fyrir alla</em> hér á landi á ráðstefnu sem félagsmálaráðuneytið efnir til í Iðnó miðvikudaginn 25. apríl. Ætlunin er að vekja athygli almennings á að allir eigi rétt á jöfnum tækifærum án tillits til uppruna, kyns, trúar, lífsskoðunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og aldurs.