03 júlí 2013
Forsætisráðherra tók á móti aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
<p>Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, tók á móti Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, á Þingvöllum í morgun. Gengið var frá Hakinu, niður Almannagjá og að Þingvallabústaðnum, en Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO.</p>