29 nóvember 2013Dómsmálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið
Alþjóðleg jafnréttisverðlaun til Íslands
Ísland hlaut í gær alþjóðleg jafnréttisverðlaun fyrir framúrskarandi árangur í jafnréttismálum á ráðstefnunni Women in Parliaments sem haldin var í Brussel. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra tóku á móti verðlaununum fyrir hönd Íslands.