26 apríl 2002
Eldhúsdagsumræður á Alþingi, 24.04.2002
Í Eldhúsdagsumræðum á Alþingi 23. apríl s.l. kom fram í máli iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, að ný byggðaáætlun verði afgreidd frá Alþingi einhvern næstu daga. Nýmæli í þessari tillögu eru þau, að gerð er grein fyrir 22 vel skilgreindum verkefnum sem ráðast skal í og er einn aðili, sem oftast er eitthvert ráðuneytanna, gerður ábyrgur fyrir framkvæmd.