11 september 2006Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfisráðuneytið og HR undirrita samstarfssamning
Umhverfisráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík gerðu nýlega með sér starfsnámssamning og munu nemendur lagadeildar skólans í kjölfarið stunda starfsnám í ráðuneytinu. Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu og Sigurður Tómas Magnússon, sérfræðingur við lagadeild HR, undirrituðu samninginn.