27 janúar 2015Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Styrkur til Landssamtakanna Þroskahjálpar til framleiðslu þáttaraðarinnar
„Með okkar augum“
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar, hafa undirritað samning um styrkveitingu, að fjárhæð 2 milljónir króna, til framleiðslu á nýrri þátttaröð sjónvarpsþáttanna „Með okkar augum“ þar sem fólk með þroskahömlun er í lykilhlutverkum.