16 janúar 2009Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Afturvirk heimild til uppgjörs í erlendum gjaldmiðli
Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 18. desember sl. var opnað fyrir það að félög gætu, fyrir 30. desember 2008, sótt um heimild ársreikningaskrár til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli, annars vegar vegna reikningsárs sem hófst 1. janúar 2008 eða síðar á því ári og hins vegar vegna reikningsársins sem hófst 1. janúar 2009.