20 mars 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Hátt í 300 milljónir króna í
verkefnastyrki á sviði félagsmála
Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur ákveðið úthlutun verkefna- og rekstrarstyrkja til 58 félagasamtaka sem starfa á sviði félagsmála, samtals rúmar 286 milljónir króna. Auk verkefna og rekstrarstyrkja eru veittir styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði forvarna, fræðslu og endurhæfingar.