02 janúar 2007
Biskup Íslands ræddi umferðarslys í nýársprédikun
<p align=justify>Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, gerði umferðarslys að umtalsefni í nýársprédikun sinni í guðsþjónustu í Dómkirkjunni í gærmorgun. Sagði hann að skelfileg umferðarslys sem hafi valdið dauða 30 karla, kvenna og barna skilja eftir sig harm og sorg. Slíkt væri ægileg blóðtaka sem líkja mætti við hamfarir.</p>