23 október 2024Dómsmálaráðuneytið
Starfshópur um endurskoðun fyrirkomulags sóknargjalda
Þann 17. september 2024 skipaði Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, starfshóp undir forystu Kristrúnar Heimisdóttur, sem hefur það hlutverk að endurskoða fyrirkomulag sóknargjalda.
Aðrir í starfshópnum eru Gísli Páll Pálsson, Ingvar Smári Birgisson og Sólrún Halldóra Þrastardóttir.