24 apríl 2013
Viðurkenningar á Degi umhverfisins
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, veitti Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi, Melaskóla í Reykjavík og Patreksskóla á Patreksfirði útnefndir Varðliðar umhverfisins.