20 nóvember 2003
Samúðarkveðjur utanríkisráðherra vegna hryðjuverkaárásanna í Istanbúl
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, hefur ritað Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, og Abdullah Gul, utanríkisráðherra Tyrklands, bréf þar sem hann lýsir hryggð vegna hryðjuverkaárásanna í Istanbúl í dag.