30 september 2010Heilbrigðisráðuneytið
Fyrstu bleiku slaufurnar afhentar
Fyrstu bleiku slaufurnar í átaki Krabbameinsfélagsins sem ætlað er að vekja athygli á konum og krabbameini, voru afhentar í heilbrigðisráðuneytinu í dag. Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra, nældi fyrstu slaufunum í þær Ágústu Ernu Hilmarsdóttur, Guðnýju Kristrúnu Guðjónsdóttur og Stefaníu Guðmundsdóttur, en þær hafa allar barist við krabbamein.