16 nóvember 2009Innviðaráðuneytið
Framtíð sveitarstjórnarsamstarfs rædd hjá Evrópuráðinu
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, tekur nú þátt í sveitarstjórnarráðherrafundi Evrópuráðsins, sem að þessu sinni er haldinn í Utrecht í Hollandi. Þetta er 16. ráðherrafundur sveitarstjórnarráðherranna, en þeir hittast nú á tveggja ára fresti.