24 október 2007Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Nýr tvísköttunarsamningur við Bandaríkin
Í gær var undirritaður í Washington nýr samningur milli Íslands og Bandaríkja Norður- Ameríku til að koma í veg fyrir tvísköttun. Af hálfu Íslands undirritaði Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, samninginn en fyrir hönd Bandaríkjanna, Robert M. Kimmit, varafjármálaráðherra.