19 ágúst 2014
Krossgötur í Dyflinni
<p> Á árinu er þess minnst að þúsund ár liðin frá Brjánsbardaga, sem talinn er marka endalok yfirráða víkinga á Írlandi.  Bardaginn var háður á föstudaginn langa 1014, á Nautsakri (Clontarf) í norðurhluta Dyflinnar, en þar tókust á herir undir forystu yfirkonungs Íra, Brjáns Borumha, og leiðtoga víkinga og írskra smáhöfðingja, Sigtryggs Silkiskeggs. </p>