21 maí 2014
Hluti af jörðinni Bringum friðlýst sem fólkvangur
<p>Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, staðfesti í gær friðlýsingu hluta af jörðinni Bringum efst í Mosfellsdal sem fólkvang. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda svæðið til útivistar almennings, náttúruskoðunar og fræðslu, auk þess að varðveita sérstakar náttúru- og menningarminjar.</p>