08 október 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Stuttmyndin Stattu með þér frumsýnd 9. október
Stuttmyndin Stattu með þér verður frumsýnd í grunnskólum landsins á morgun, 9. október, og þá verður myndin einnig gerð aðgengileg öllum á vefnum. Myndin fjallar um sjálfsvirðingu, ofbeldi og að setja mörk og er unnin á vegum samstarfsverkefnisins Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum.