02 febrúar 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Fundað með forstjóra Greiningar- og ráðgjafarstöðvarinnar
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra átti í dag fund með Soffíu Lárusdóttur, forstjóra Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, sem kynnti honum starfsemi stöðvarinnar, helstu verkefni, faglegar áherslur og nýmæli sem unnið er að.